Karellen

Velkomin á Tröð

Deildarnar á leikskólanum heita eftir staðháttum á Álftanesi og nöfnin þeirra raðast eftir því hvert þær snúa. Deildin okkar heitir Tröð eftir bóndabænum Tröð sem stóð þar sem Hólmatúnið er núna.

Á Tröð skólaárið 2023-2024 eru tveir árgangar, 2020 og 2021.

Dagurinn á Tröð byrjar klukkan 8 með því að börnin fá sér morgunmat. Eftir morgunmatinn förum við í listakrók og frjálsan leik til klukkan 9:30 en þá er samvera þar sem við borðum ávexti. Eftir samveruna förum við í hópastarf eða útiveru og erum við úti til rúmlega 11. Söngstund er fyrir hádegismat en við borðum hádegismat klukkan 11:30. Eftir hádegismatinn er slökun þar sem legið er og hlustað á sögu. Klukkan 13 er útivera eða frjáls leikur og fyrir síðdegiskaffið sem er klukkan 14:30 er stutt samverustund þar sem m.a. er sungið, farið í leiki, æft hljóð og aðrar æfingar. Eftir síðdegiskaffið er markviss málörvun og lesnar sögur fyrir börnin í þeirra hópum, síðan leikum við okkur þangað til mamma eða pabbi koma að sækja okkur.

Við förum öll í íþróttahúsið einu sinni í viku, þar sem áherslan skiptist á boltafærni, þrautabraut, leiki, gólfæfingar og frjálsan leik. Auk þess eigum við salinn í leikskólanum einu sinni í viku þar sem við förum í skipulagðar hreyfistundir. Einu sinni í viku förum í gönguferð út í náttúruna þar sem við getum safnað að okkur ýmsum efnivið sem við síðan getum skoðað betur þegar við komum aftur í leikskólann og notað í listaverkagerð. Boðið er upp á sundkennslu fyrir elsta árgang leikskólans.

Við erum í góðu samstarfi við Álftanesskóla en börnin í elsta árganginum fer í heimsóknir í stærðfræðistofu, tónlistar og myndlistastofu og Álftanesskóli býður svo tilvonandi skólabörnum í heimsókn að vori þar sem kennarar taka á móti börnunum og kynna þeim skólann. Svo koma nemendur úr 1. bekk í heimsókn til okkar að hausti. Í elsta árganginum er unnið með bókina Í talnalandi þar sem unnið er með byrjendakennslu í stærðfræði og stærðfræðihugtök. Einnig leggjum við áherslu á aukna málvitund og málþroska, rímum og leikum okkur með orð og setningar.

Á haustin býður foreldrafélagið börnunum annað hvert ár upp á dansnámskeið í sex vikur sem endar á danssýningu fyrir foreldra og annað hvert ár á móti er boðið upp á sex vikna tónlistarnámskeið sem endar á tónlistartíma með foreldrum.


Þó nokkuð samstarf er á milli leikskólanna á Álftanesi og er samræmd námsáætlun fyrir börnin í elsta árganginum þannig að áherslur eru svipaðar í skólastarfinu. Við förum í sameiginlegar vettvangsferðir, hittumst í heimsóknum á leikskólunum og förum saman í útskriftarferð að vori sem er rútuferð á bóndabæ, grillað, farið í leiki og við skemmtum okkur saman í boði Lions manna á Álftanesi.

Við útskrifum svo elstu börnin okkar að vori og allir fá útskriftarskjal og rós. Að athöfninni lokinni tekur við sumarhátíð Foreldrafélagsins þar sem eru grillaðar pylsur, farið í leiki og fleira skemmtilegt.

© 2016 - 2024 Karellen