Karellen
news

Helgileikurinn í Holtakoti

26. 11. 2021

Í morgun var hinn hefðbundni helgileikur sem við höfum verið með á hverju ári. Sökum ástandsins í þjóðfélaginu var engum boðið að horfa á börnin sín en í stað þess var helgileikurinn tekinn upp og foreldrar fá svo link af upptökunni senda í tölvupósti.

Þau voru ótrúlega dugleg og flott og ekki laust við að sæjust eitt og eitt tár hjá starfsfólkinu. Foreldrarnir geta svo sannarlega verið stolt af ungunum sínum. Við erum það líka.

© 2016 - 2024 Karellen