Karellen

Starfsemi leikskóla heyrir undir fræðslu- og menningarsvið. Þar starfa sérfræðingar sem veita leikskólakennurum og foreldrum ráðgjöf.

Sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Eiríkur Björn Björgvinsson, hefur yfirumsjón með rekstrarlegu starfi leikskóla en Halldóra Pétursdóttir verkefnastjóri leikskólasviðs, hefur yfirumsjón með faglegu starfi leikskólanna.

Foreldrar og eða kennarar leikskóla hafa aðgang að stoðþjónustu sveitafélagsins ef aðilar eru sammála um frávik í þroska barns.

Margét Þórarinsdóttir er sérkennslufulltrúi. Hlutverk hennar er að sinna ráðgjöf til forelda og starfsmanna leikskóla.

Guðrún Kristófersdóttir er sálfræðingur hjá skólaþjónustu Garðabæjar og geta kennarar leikskóla og foreldrar sótt sálfræðiráðgjöf til hennar í gegnum leikskólann.

Sara Bjargardóttir er talmeinafræðingur og hlutverk hennar er að greina börn með málþroskafrávik eftir ábendingum frá starfsfólki leikskólans, auk þess að veita kennurum leikskóla og foreldrum ráðgjöf sé þess óskað.

© 2016 - 2024 Karellen