Karellen

Leikskólinn notar kerfi sem heitir Karellen og hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um það á www.karellen.is.

Heimasíða skólans er: http://www.holtakot.is/

Inni á heimasíðu skólans finnið þið innskráningartakka sem leiðir ykkur inn á innskráningarsíðu Karellen →
Til þess að fá aðgang að innra kerfinu, biðjum við ykkur að smella á ‘Virkja aðgang’ og skrá netfangið ykkar sem er skráð hjá skólanum.

Þá fáið þið sendan tölvupóst með slóð, smellið á slóðina til þess að virkja aðganginn ykkar (ath. hann gæti farið í ruslpóstinn) þá fáið þið upp valmöguleikann að búa til lykilorð. Ef pósturinn berst ekki, hafið þá samband við stjórnendur skólans.

Auk þess að hafa aðgang að innra kerfinu í gegnum vefsíðu er app sem að við mælum með að þið náið í. Hægt er að nálgast appið á App store og í Google play.

Aðgangur aðstandanda í innra kerfinu og appinu gefur yfirsýn og upplýsingar um dag barnsins í skólanum:

  • viðveruskráningar
  • máltíðarskráningar
  • svefnskráningar
  • matseðill vikunnar
  • viðburðardagatal
  • samtal milli aðstandenda og skólans
  • myndir af barninu

Aðstandendur hafa þann möguleika að skrá leyfi og veikindi barnsins í gegnum kerfið.


Hlökkum til að deila með ykkur þessum nýjungum í leikskólastarfinu og vonum að kerfið muni nýtast fyrst og fremst til að efla upplýsingaflæði og frekari samskipti milli heimilis og skóla.

© 2016 - 2024 Karellen