Karellen
news

Nátttröllið Yrsa

11. 12. 2023

Fimmtudaginn 7. desember kom í heimsókn til okkar leikhópurinn Óhemjur, en það eru þau Ellen Bæhernz leikkona og Helgi Grímur Hermansson leiklistarkennari með skemmtilega jólasýningu.

Leiksýningin var um nátttröllið Yrsu sem sér fram á að vera ein um jólin af því að fjölskyldan hennar er orðin að steini og þarf að grípa til sinna ráða til að hafa félagsskap um jólin.

Sagan er um einmanna tröll sem þarf að læra eitt og annað, eins og að setja sig í spor annarra.

Sýningin var fyrir þrjá elstu árganga leikskólans, það er alltaf gaman að fá leiksýningu fyrir börnin enda nutu þau sín vel á sýningunni.




© 2016 - 2024 Karellen