Mánudaginn 15. september var aðalfundur foreldrafélagsins haldinn í sal leikskólans.
Farið var yfir helstu hlutverk foreldrafélagsins, stöðu reikninga og kosið í stjórn. Stjórn síðasta árs heldur sér að mestu, en Gunnar Ingólfsson, sem sinnt hefur stöðu gjaldkera síðustu ár stígur úr stjórn ásamt Þresti Péturssyni sem hafði stöðu varamanns í foreldrafélaginu síðasta vetur, þar sem að börnin þeirra eru útskrifuð úr leikskóla. Við þökkum þeim kærlega fyrir samstarfið. En við stöðu gjaldkera tekur Auður Marín Adolphsdóttir.
Einnig var kosið í foreldraráð leikskólans en Hrefna Þórarinsdóttir situr áfram í foreldraráði ásamt Þorbirni Björnssyni.
Erna Þórarinsdóttir formaður
Auður Marín Adolphsdóttir gjaldkeri
Hrefna Þórarinsdóttir ritari
Gauti K. Gíslason - varamaður
Guðbjörn Jensson - varamaður
Hrefna Þórarinsdóttir
Þorbjörn Björnsson
Hægt er að nálgast fundargerð aðalfundarins ásamt fundargerðum síðustu ára:
18 .03. 2026
01 .12. 2025
26 .11. 2025
25 .11. 2025
12 .11. 2025
22 .09. 2025