Karellen
news

Opið hús og rauður dagur

01. 12. 2025

Föstudaginn 28. nóvember var opið hús á Holtakoti og rauður dagur í tilefni af fyrsta sunnudegi í aðventu. Foreldrum og öðrum aðstandendum var boðið í morgunkaffi og með því.

Starfsmenn leikskólans hittust kvöldið á undan til þess að undirbúa skólann fyrir stóra daginn með jólaljósi og skrauti sem börnin hafa verið að föndra undanfarnar vikur og var til sýnis fyrir gestina á veggjum skólans. Þar mátti sjá ýmsar útgáfur af jólasveinum og snjókörlum, jólatrjám og hreindýrum.

Gestunum var boðið upp á kaffi og heitt súkkulað, heimabakað kryddbrauð með smjöri og osti og heimabakaðar smákökur.

Elstu börnin á Tröð og Hliði sungu nokkur jólalög í salnum fyrir gestina og bræddu að sjálfsögðu hjörtu allra viðstaddra með söngnum.

Að loknu opnu húsi hittust deildarnar í sal leikskólans í söngstund þar sem var haldið áfram að syngja jólalög, farið yfir tákn vikunnar í Tákn með tali og að lokum var svo kveikt á fyrsta aðventukertinu.

© 2016 - 2026 Karellen