Karellen
news

​Vináttuhlaup með Blæ bangsa

12. 11. 2025

Vináttuverkefni Barnaheilla er eitt af þeim verkefnum sem unnið er að á Holtakoti þar sem við lærum gildi góðrar vináttu með fjölbreytileika, virðingu, umhyggju og hugrekki að leiðarljósi og getum þannig öll haft jákvæð áhrif á samfélagið.

Laugardaginn 8. Nóvember var tileinkaður baráttunni við einelti. Barnaheill stofnaði til Vináttuhlaups og hvatti alla skóla sem eru að vinna með Vináttuverkefni Barnaheilla og Blæ bangsa, til að taka þátt og tengdum við hlaupið einnig við forvarnarviku Garðabæjar, þar sem þema vikunnar var vellíðan og velferð. Öll börnin á Holtakoti tóku þátt í hlaupinu sem fór fram bæði inni á skólalóðinni og fyrir utan.

Yngstu börnin á Seylu fóru hring á litla útisvæðinu fyrir framan skólann og börnin á Mýri fóru hringinn á stóra útisvæðinu fyrir aftan skólann. Eldri börnin á Tröð og Hliði gerðu sér lítið fyrir og fóru stórann hring í kringum leikskólalóðina. Blær bangsi var fremstur í flokki í hlaupinu og allir litlu hjálparbangsarnir voru með í för.

Að hlaupinu loknu fengu allir kleinu og vatnssopa í tilefni af því að alþjóðlegi kleinudagurinn var þennan dag, mánudaginn 10. Nóvember. Við tók svo útivera fram að hádegismat og í samverunni fyrir matinn fengu allir viðurkenningu fyrir þátttöku í vináttuhlaupinu.

© 2016 - 2026 Karellen