Karellen
news

Leikhúsferð og heimsókn frá slökkviliðinu

22. 09. 2025

Þá er september langt genginn og allt vetrarstarfið hjá okkur að hrökkva í gang. Aðlögun er að mestu lokið í bili og hefur það gengið nokkuð vel hjá flest öllum sem hafa aðlagast nokkuð vel og rútínan er að mestu komin í réttan farveg.

Börnin á Tröð og Mýri skiptast á að fara í íþróttahúsið annan hvern þriðjudag sem hefur gengið mjög vel, en börnin á Hliði fara í íþróttahúsið alla fimmtudaga.

Elstu börnin á Hliði verða svo í sundi alla miðvikudaga í vetur en þar sem að hópurinn er frekar stór fara verður þeim skipt í tvo hópa í sundkennslunni.

Eins og svo oft áður þá er nóg að gera hjá elstu börnunum sem eru að hefja sinn síðasta vetur í leikskólanum, en fyrir utan undirbúning fyrir grunnskólagönguna er þeim boðið á alls kyns viðburði hingað og þangað.

Miðvikudaginn 17. september var elstu börnunum á Hliði boðið í Þjóðleikhúsið að sá sýninguna Blómin á þakinu. Farið var með rútu á sýninguna og aftur heim. Börnin voru mjög spennt að fara á leikhússýninguna og skemmtu sér konunglega.

Mánudaginn 22. september fóru svo elstu börnin á Hliði í heimsókn á Krakkakot þar sem þau, ásamt elstu börnunum á Krakkakoti, fengu slökkviliðið í heimsókn með fræðslu fyrir börnin um eldvarnir og öryggi.

Að fræðslunni lokinni fengu þau að kíkja á slökkvibílinn og fengu auðvitað mynd af hópnum fyrir framan bílinn.

© 2016 - 2026 Karellen