Karellen
news

Birgitta Haukdal les fyrir börnin

25. 11. 2025

Þriðjudaginn 25. nóvember fengum við hana Birgittu Haukdal í heimsókn til okkar í boði foreldrafélagsins. Hún las fyrir börnin úr nýju bókinni sinni um Láru og Ljónsa sem heitir Atli fer í tívolí.

Hún byrjaði á því að sýna börnunum töfrabókina sína þar sem hægt er að spila og syngja með jólalögum og las svo bókina fyrir börnin sem hlustuðu af miklum áhuga á söguna.

Þegar hún var búin að lesa söguna stóðu svo allir upp og sungu og dönsuðu við lagið Ryksugan á fullu við mikinn fögnuð. Að lokum fengu svo allir fallega Láru og Ljónsa sundpoka að gjöf.

© 2016 - 2026 Karellen