Karellen
news

Kveikt á jólatrjánum á Bessastöðum

26. 11. 2025

Miðvikudaginn 26. nóvember fóru börnin á Hliði ásamt börnunum á Krakkakoti og börnum í 1. og 2. bekk í Álftanesskóla, að heimsækja forsetahjónin á Bessastöðum og vera viðstödd þegar kveikt var á jólatrjánum fyrir framan Bessastaði.

Farið var með rútu og þegar komið var á staðin hófst niðurtalning til að kveikja á trjánum. Barnahópurinn skiptist svo í tvennt þar sem dansað var í kringum sitthvort jólatrén og sungin jólalög undir harmonikkuspili.


Að lokum fengu svo allir piparkökur og heitt kakó áður en haldið var aftur upp í rútuna og heim á leið í daglega rútínu.

© 2016 - 2026 Karellen