Karellen
news

Eldri deildarnar fara í sund

23. 07. 2025

Í dag eru bara tvær deildar opnar hjá okkur sem þýðir að börnin hafa sameinast á milli deilda. Það hefur gengið mjög vel og eru allir sáttir. Börnin á Tröð fóru á Hlið og fannst þeim það ótrúlega spennandi og börnin á Seylu fóru á Mýri sem hefur gengið ótrúlega vel.

Auðvita þarf að hafa uppbrot í leikskólanum og ákvað Hlið og Tröð að skella sér í sund þar sem nægur mannskapur var til að gæta öryggi allra.

Það var mikil tilhlökkun að skreppa í sundið og höfðu öll börnin ótrúlega gaman. Börnin fengu lof í lófa hversu dugleg þau voru öll með tölu.

Myndirnar sýna það og sanna hversu gaman þetta var.

© 2016 - 2026 Karellen