Karellen
news

Eurovision partý í útiveru

13. 05. 2025

Sumarið er mætt á Holtakoti og upphitun fyrir Eurovison í fullum gangi hjá okkur. Græjurnar voru skrúfaðar í botn í útiverunni eftir hádegið í dag, þriðjudaginn 13. maí í sól og sannkallaðri sumarblíðu. Aðallagið, Eurovision lag Íslands 2025 var að sjálfsögðu sett á fullt enda börnin sannkallaðir VÆB aðdáendur. Partýið hélt svo áfram eftir kaffitímann þegar allir hentu sér út í sólina og sumarið.

© 2016 - 2026 Karellen