Karellen
news

Karnivalhátíð barnanna

25. 07. 2025

Í dag er föstudagur og tilvalið að gera eitthvað skemmtilegt. Slegin var upp Karnival hátíð og ýmsar þrautir settar upp. Börnin spiluðu bingó og söfnuðu stjörnum og fengu verðlaun þegar búið var að fylla bingóspjöldin. Allir máluðu eigin kórónur og þeir sem vildu fengu að föndra armbönd undir leiðsögn kennara.

Blöðrur voru blásnar og búnar til allskonar fígúrur úr blöðrunum börnunum til mikillar skemmtunar.

Óhætt að segja að þau hafi skemmt sér konunglega :)

Salurinn var skreyttur fyrir hátíðina

Spiderman var búinn til úr blöðrum og hengdur upp í loftið

Börnin máluðu sínar kórónur í öllum þeim litum sem þeim þóknaðist

Blöðrur í hinum ýmsum fígúrum

Armbönd föndruð með dyggri aðstoð kennara

Börnin bíða spennt eftir að fara og leysa þrautir

Allir vígalega málaðir í framan

Andrea að kenna þeim hvernig á að leysa þrautirnar

Bingóspjöldin sem Andrea föndraði fyrir karnivalið

Börnin fá stjörnu fyrir hverja leysta þraut og svo verðlaun að lokum

Allir samviskusamir að safna stigum til að fá stjörnu á blaðið. Tinna fylgist með og leiðbeinir

Allir spenntir fyrir blöðrunum. Ein og ein springur við gott tækifæri.

Hér er mikið spáð í spilin


© 2016 - 2026 Karellen