Karellen
news

Seyla fer í göngutúr

04. 07. 2025

Þegar veðrið leikur við okkur eins og hefur gert síðustu tvo daga þá þarf að nýta það í að kanna heiminn.

Seyla fór með yngstu molana í göngutúr á róló á Álftanesinu og borðuðu ávextina úti undir berum himni. Börnin voru að vonum alsæl að fara út fyrir girðingu leikskólans og kynnast fleiri rólóvöllum.

það voru sáttir en þreyttir litlir fætur sem komu svo heim í hádegismat og svo í lúrinn sinn á eftir.

© 2016 - 2026 Karellen