Þó það rigni þá þarf það ekki að þýða leiðinlegur dagur í útiveru. Við snúum vörn í sókn og drögum fram brunaslönguna og höfum alvöru rigningarpartý sem er ekki víst að klikki.
Börnin skemmtu sér konunglega að sulla og drullumalla í útiveru. Myndirnar segja allt sem segja þarf! :)
Einnig fengum við skemmtilega gesti í morgun frá Garðahrauni sem er sértækt frístundar- og félagsmiðstöðvaúrræði. Þau voru að vonum glöð að sjá alla þessa krakka skemmta sér og tóku þátt með börnunum í sullumbulli (svona eins langt og það náði) en komu svo inn og fengu smá kakó og kex og spjall.
Við á Holtakoti þökkum fyrir samveruna í morgun með þeim í Garðahrauni.

Fransisco var mjög eftirsóttur með brunaslönguna góðu


í biðröð í kranann sem búið var að skrúfa frá til að flýta fyrir fötufyllingum




Sæa notaði tækifærið og gerði allsherjar "rigningu"






Allt var nýtt til að ferja vatn á sullustaðina

18 .03. 2026
01 .12. 2025
26 .11. 2025
25 .11. 2025
12 .11. 2025
22 .09. 2025