Karellen
news

Sumarstarfið byrjað

26. 06. 2025

Nú er sumarstarfið okkar komið í gang og börnin verja meiri tíma úti í allskonar gönguferðir og upplifanir. Sólin vonandi verður góð við okkur í sumar og því brýnt að börnin séu með sólarvörn í sínum hólfum.

Í gönguferðunum förum við að skoða dýrin hér á Álftanesi og jafnvel gefum þeim brauð. Við skoðum aðra róluvelli í öðrum hverfum. Förum í fjöruferð og könnum umhverfið þar og kannski tínum skeljar og steina.

Litlu krúttin eru auðkennanleg í gulum vestum svo vonandi fáum við smá bros þegar fólk sér litlu gullmolana kanna heiminn.

© 2016 - 2026 Karellen