
Það er stór stund fyrir barn að útskrifast úr leikskólanum, að klára fyrsta skólastigið. Elstu börnin okkar á Hliði eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir sjálfan útskriftardaginn sinn sem verður miðvikudaginn 29. maí næstkomandi, en þann sama dag höldum við einnig hina árlegu sumarhátíð foreldrafélagsins. Hluti af undirbúningnum og hluti af okkar hefðum er að skreyta gluggana í salnum með fallegum sumarlegum málverkum eftir börnin, en í dag, föstudaginn 23. maí fengu börnin að skreyta gluggana og gera þá klára fyrir hátíðsdaginn sjálfan. Við hlökkum til að taka þátt í þessum degi og gleðjast með börnunum.
18 .03. 2026
01 .12. 2025
26 .11. 2025
25 .11. 2025
12 .11. 2025
22 .09. 2025