Karellen
news

Holtakot 18 ára

29. 04. 2024

Þann 28. apríl 2006 opnaði Heilsuleikskólinn Holtakot formlega fyrir starfsemi leikskólans, sem þýðir að leikskólinn okkar er orðinn 18 ára. Í dag, þann 29. apríl héldum við upp á afmæli leikskólans.

Börn og starfsfólk hittust í salnum og sungu saman nokkur lög. Börnin fengu að velja óskalag frá hverri deild. Hlið valdi lagið Í leikskóla er gaman, Tröð valdi söngvasyrpuna Afi minn og amma mín, Mýri valdi Litalagið, gulur, rauður, grænn og blár og Seyla valdi Allur matur, sem við syngjum vanalega í samverustund fyrir hádegismatinn. Að lokum sungum við svo afmælislagið fyrir leikskólann okkar og vinalagið áður en allir héldu aftur á sína deild og fengu sér ávaxtabita áður en haldið var út að leika í sól og sumaryl.

Í kaffitímanum fengu allir afmælisköku, kalda mjólk og ávexti.

© 2016 - 2024 Karellen